
Stjórnarandstaðan líkleg til sigurs á sunnudaginn
„Það virkar eins og vindurinn sé meira í seglum stjórnarandstöðunnar, en við verðum að bíða eftir niðurstöðunum á sunnudag; Viktor Orban er sterkur andstæðingur sem hefur verið við völd í sextán ár,“ segir Zselyke Csaky, stjórnmálaskýrandi og greinandi hjá Centre for European Reform hugveitunni í Brussel í samtali við RÚV.
...„Meginröksemd stjórnarandstöðunnar í fyrri kosningum var að leiðtogar hennar væru ekki Viktor Orban,“ segir Csaky. „Það er vissulega það sem Peter Magyar og flokkmenn hans eru að segja núna, en þau reyna líka að tala um möguleikann á nýrri framtíð fyrir Ungverjaland. Fidesz-flokkurinn er að endurnýta sinn málflutning frá fyrri kosningum um erlenda óvini. Núna er það Úkraína, áður var það George Soros (ungversk-bandarískur auðkýfingur), eða innflytjendur. Það virkaði fyrir Fidesz í fyrri kosningum, en það er ekki víst að það virki í þetta skiptið. Spurningin núna er hvort kjósendur hafi meiri áhyggjur af stríði, eða stöðu efnahagsmála í Ungverjalandi, og svarið við þeirri spurningu verður ráðandi þátturinn í þessum kosningum.“
